Veitingarstaður

VEITINGARSTAÐURINN LÓNIÐ
Veitingastaðurinn Lónið er staðsettur á fyrstu hæð Hótel Loftleiða. Kokkar staðarins leggja áherslu á að nota aðeins ferskt, íslenskt, árstíðabundið hráefni þar sem matseðillinn endurspeglar árstímann. Árstíðarbundið hlaðborð, eins og jólahlaðborðið og skatan á Þorláksmessu eru viðburðir sem njóta ávallt vinsælda. Annar af stjórnendum staðarins, Jón Ögmundsson, veiðir sjálfur villibráð fyrir villibráðahlaðborðið í október og nóvember. Til viðbótar við þessi árstíðabundnu tilboð spilar íslenskur fiskur stórt hlutverk í matseðlinum árið um kring.

Hið rómaða hádegis- og kvöldverðarhlaðborð býður upp á girnilegt úrval forrétta, aðalrétta og eftirrétta.

  • Morgunverðarhlaðborð frá kl. 04:30 – 10:00
  • Herbergisþjónusta er í boði frá kl. 07:00 - 23:00


LÓNSBAR

Lónsbarinn er glæsilegur bar á jarðhæð Hótels Loftleiða. Þar er tilvalið að setjast niður og anda léttar í erli dagsins eða að slappa af eftir vel heppnaða máltíð.

  • LÓNSBAR er opinn frá kl. 12:00 - 01:00 alla daga vikunnar


Frekari upplýsingar og borðapantanir fást í síma 444 4050

Hótel Loftleiðir - Reykjavík
Icelandair Hótel Loftleiðir - Nauthólsvegi 52 - 101 Reykjavík - Ísland

Direct tel: 444 4500
Booking center: 444 4000

Email: gestamhll@icehotels.is
GPS: 64°7'50.89"N, 21°55'57.99"W

Book Online

Hótel:
Komudagur:
Gistinætur:
Fullorðnir:
Börn yngri en 12:
loading